Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

föstudagur, mars 18, 2005

örvæntingafullar húsfrúr

er að horfa á 7-unda þátt um húsfrúrnar örvæntingafullu. namminamm. algjörlega brilljant þættir. eins og fyrsti þátturinn angraði mig. fannst þetta algjörlega glatað. en ákvað að vera ekki fordómafull og horfa á þátt 2 með opnum huga. og opin hugur borgar sig. alveg margborgar sig. við erum að tala um það sem vinkonur lucy jordan upplifðu eftir að hún fór í sinn eilífðar bíltúr í gegnum parís. við erum að tala um beðmálspíurnar í saumaklúbbi með stepford eiginkonunum. við erum að tala um sýndarveruleika sem er svo fáránlegur að hann getur ekki annað en verið sannur. og lucy sjálf (eða mary alice) segir söguna úr gröfinni. og framliðinn og vel skapaður sögumaður er bara snild.

þriðjudagur, mars 15, 2005

af hverju elskarðu mig? spurði drengurinn. afhverjuafhverjuafhverju? er það vegna þess að ég er svo stór og sterkur? er það vegna þess að ég er svo klár og duglegur? er það vegna þess að ég er svo góður? er það vegna þess að ég er svo myndarlegur? og drengurinn vildi svar. og ekki hvaða svar sem var. bara sannleikann. því drengurinn elskaði sannleikann. og stúlkan svaraði: það er ekki vegna þeirra ágætu kosta sem þú hefur talið upp elsku vinur minn. ég elska þig vegna þess að þegar ég horfi á mig með þínum augum þá sé ég ekki kryplinginn sem ég er. heldur sterka stúlku, góða stúlku, gáfaða stúlku, glaða stúlku. þess vegna elska ég þig drengurinn minn. vegna þess að með þér get ég elskað mig.

mánudagur, mars 14, 2005


í svona miklu stuði var svonakona á laugardagskvöldið. enda mikil stuð kona. Posted by Hello

atvinna óskast

er að leita að starfi. góð laun, mikil völd, engin ábyrgð og takmörkuð viðvera skilyrði. helsti kostur minn er að vera sæt.

hefur einhver áhuga?