Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

laugardagur, júní 28, 2003

döhh-ég er búin að fatta þetta. Audda er hægt að velja tungumál í settings:Þ

föstudagur, júní 27, 2003

hummm-eg tarf semsagt ad kynnamer hvernig eg nota islenskustafina....
Jæja-ég er á lífi-og orðin bókmenntafræðingur með prófskírteini og alles! En ég er ekki alveg að fíla nýja bloggerinn, kannski af því ég nennti ekki að lesa leiðbeiningarnar með honum, When all else fails, read the manual:Þ Það er mitt mottó.

En hér ríður rækjum andstyggileg pest. Hrafntinna Margrét er sárlasin, og mamma hennar og pabbi eru frekar slöpp líka, Agnes Engilráð hefur eitthvað verið að kvarta og fóstrurnar kvörtuðu undan Emblu Maríu ofurpíu-þannig að kannski hún sé bar að verða lasin líka litla skinnið!