Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

föstudagur, apríl 08, 2005

mikilvæg spurning:

hvernig geta 300 grömm af súkkulaði orðið að tveimur kílóum af kvennmannsholdi?

sá sem getur svarað þessu ætti skilið nóbelsverðlaun. sko friðarverðlau nóbels. eða því sem næst.
og hvað gerir kona þá? hvað,hvað?
jújú-auðvitað bara standa bein í baki. sitja bein í baki. muna eftir beininu í nefinu. sem er svo ekki bein. en þessi kona er með stórt nef og þess vegna kannski meira til í því. jájá er það ekki bara. rétta úr sér. spenna brjóstin fram. tjalda því sem til er þó að það sé nánast ekkert. ber brjóstin upp í vindinn. bein í baki með brjóstin ber. og bein í nefinu. berjast bara í vindinum með brjósin mjólkurhvít og alveg ber.

mánudagur, apríl 04, 2005

allt sem kona vill að leikhúsið geri. rakst á þetta hjá eðalkonunni fíu minni fender.

eftir Ariane Mnouchkine:

Hjálp!
í tilefni Alþjóðaleiklistardagsins 2005

Leikhús, komdu mér til hjálpar
Ég sef. Vektu mig
Ég er týndur í myrkrinu, leiddu mig, í það minnsta að kertaloga
Ég er löt, láttu mig skammast mín
Ég er þreyttur, reistu mig við
Mér stendur á sama, lemdu mig
Mér stendur enn á sama, hjólaðu í mig
Ég er hræddur, hughreystu mig
Ég er fáfróð, menntaðu mig
Ég er skepna, gerðu mig að manneskju
Ég er tilgerðarlegur, komdu mér til að veltast úr hlátri
Ég er kaldhæðin, sláðu mig út af laginu
Ég er heimskur, breyttu mér
Ég er illgjörn, refsaðu mér
Ég er ráðríkur og grimmur, berstu gegn mér
Ég er smámunasöm, gerðu grín að mér
Ég er ókurteis, viltu ala mig upp
Ég er mállaus, leystu mig
Mig dreymir ekki lengur, segðu mér að ég sé aumingi eða fáviti
Ég hef gleymt, helltu Minningunni yfir mig
Mér finnst ég gömul og þreytt, láttu Barndóminn vakna
Ég er þungur, gefðu mér Tónlistina
Ég er leið, náðu í Gleðina
Ég er heyrnarlaus, láttu Þjáninguna öskra í óveðrinu
Ég er stressaður, láttu Viskuna vitja mín
Ég er veik, kveiktu Vináttu
Ég er blindur, kallaðu til öll Ljósin
Ég er undirgefin Ljótleikanum, kynntu Fegurðina allsráðandi til sögunnar
Hatrið hefur náð tökum á mér, láttu alla krafta Ástarinnar tala til mín