Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

laugardagur, apríl 30, 2005


Happy times Posted by Hello

föstudagur, apríl 29, 2005

dem

langar að jamma eitthvað. held ég sé fyllibytta. eða nei. bara bytta. eða nei. kannski bara örvæntingafull húsfrú. já-einmitt. og mig langar að fara og setjast einhverstaðar niður og tala við fullorðið fólk. og sötra með því rauðvín. *langilangilangilang*

miðvikudagur, apríl 27, 2005

ahhhh. gott.

er hætt við. og það er bara fáránlegur léttir sem fylgir því. komin með nýja hugmynd. og er bara farin að fiska á nýjum miðum. cutting my losses. án þess þó að gefast upp. neineinei-þessi kona gerir það ekki. bara hætta einhverju hjakki sem er rugl. og byrja upp á nýtt. það er gott. alltaf gott að byrja upp á nýtt. hreint blað. óskrifað blað. bara gott.

þriðjudagur, apríl 26, 2005

best að fara bara að versla...

Mbl.is - Fólkið: "SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Dagurinn í dag er kjörinn fyrir verslun, viðskipti eða hvers konar fjármálasýsl. Farðu varlega í spákaupmennsku, útkoman er ófyrirséð."

mánudagur, apríl 25, 2005

læri,læri, tækifæri...

Mbl.is - Frétt - Ætlaði að skera niður kjötlæri inni á skemmtistað sniðug leið til að eignast vini...sleppa bara brennivíninu og fara beint í hátíðarhefðina.