Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

laugardagur, mars 12, 2005

hver litaði á sjónvarpið?

og það með meira en einum lit?



kannski algeng spurning á barnmörgum heimilum á laugardagsmorgnum?

föstudagur, mars 11, 2005

guði sé lof

að ædolinu líkur í kvöld. þá fer kona kannski aftur að geta tekið þátt í kaffihúsa samræðum. er bara búin að vera útúrkú undanfarið. veit ekkert hverjar hulda svala og hildur eru. en þær hafa verið á allra vörum undanfarið.

miðvikudagur, mars 09, 2005

sænskar pizzur sækja að mér. alls staðar. og ég finn bragið og vatnið rennur. rennur,rennur,rennur. en ég brenni mig ekki á tungunni. því þessar pizzur sækja að mér í draumi. vakandi og sofandi hugsa ég um sænska pizzu með bernaise sósu og bönunum.

mánudagur, mars 07, 2005

það er ekki skugginn af því

þvílíkt stöð í svíríki....ekki skugginn af því!


það er ekki skugginn af því.... -- created with PhotoSite