Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

laugardagur, september 11, 2004

englahúð

ég er að sauma mér yndislega englahúð
mjúka,mjúka, silkimjúka englahúð
svo fallleg og mjólkurhvít
eða kannski meira eins og rjómagul

til þess þurfti ég að drepa nokkra engla
dásamlega, litla, feita og fallega engla með rauða munna

þeir hlógu svo fallega þegar ég stal af þeim örvunum
og drap þá með þeim
(en þeir hættu að hlægja með rauðu munnunum þegar ég rak þá á hol)

það verður smá mál að sauma í kringum götin sem komu
þegar ég rak þá á hol

en ég mun samt eignast þessa dásamlegu húð
sem ég get klætt mig í

kannski líður mér betur í annari húð
englahúð

ef ekki þá get ég alltaf hennt henni

4 Comments:

  • At 11:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert ekki í lagi .. greyjið mitt. Sick :-S Ljóðrænn splatter, algjör steypa.

     
  • At 4:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jakk!!!

     
  • At 9:57 f.h., Blogger Berglind Rós said…

    Hrein snilld :-)

     
  • At 10:01 e.h., Blogger Lilja said…

    Ég ætlaði sko ekkert að vera anonymous, en það var sko ég sem sagði Jakk ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home