Röfl sjálfhverfrar húsmóður í úthverfi

er rassinn á mér stór í þessu?

laugardagur, nóvember 20, 2004

besta vinkona mín...

heldur uppá þrjátíu ára afmælið sitt í kvöld. og ég er bara voða spennt að fara og jamma aðeins með henni og hennar hyski ;)

arnari finnst svo asnalegt að flokka vini sína í einhvrja bestu vini. og ég get svo sem skilið röksemdir hans fyrir því. en ég á nokkrar rooosalega góðar vinkonur sem ég er í miklu sambandi við, kynntist þeim þegar ég gekk með hrafntinnu margréti og ég get ekki hugsað mér lífið án þeirra....og held að þeim líði eins hvað mig varðar. þannig að þær eru næstum því mínar bestu vinkonur. síðan á ég eina æsku vinkonu. við erum ekki í miklu sambandi og stundum í alls engu sambandi. en þegar við tölum saman er eins og eitthvað smelli. okkur þykir einfaldlega mikið vænt hverri um aðra þó að við séum ekki duglegar að rækta það.

síðan er það sollan mín. ef ég væri lessa væri hún konan mín. en þar sem ég get ekki hugsað mér að stunda kynlíf með einhverjum sem ekki er með tippi (og kom tú þink of it....sé bara einfaldlega ekki fyrir mér að ég geti nokkrun tíma stundað kynlíf með öðrum en mínum ektamaka-nema kannski Jon bonJovi, Colin Firth, Brad Pitt og jamm-æji okey-fullt af köllum sem ég myndi hoppa uppí til án þess að hugsa mig tvisvar um :-Þ ) en já-nóg um þennan útúrdúr. en allavega væri solla konan mín ef ég (og hún) værum lessur. við erum bara sálufélagar. og vinátta okkar nær bæði hæstu hæðum og dýpstu dölum. og við erum oft ósammála en oftar sammála. við erum ósköp ólíkar, en þó svo líkar.

og ég sem sagt ætla í kúrekapartý til hennar á eftir og síðan á ball með brimkló (sem er uppáhaldsbandið hennar-en ekki mitt-en af því ég elska hana ætla ég að dansa við bó henni til heiðurs.)

1 Comments:

  • At 7:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    You go Cow-Girl and show them Cow-boys how 2 shake that bootie ;) Gaman að sjá þig í dag Silla mín...svona flippaðslega fín og dásamlega bissý að þú náðir að verða næstum viðskila við heila sherrý-flösku :) Muahahaha... góða skemmtun sæta stelpa!!!

    Heyrði ég einhvurn segja skál í boðinu???? SKÁL
    Krisrún Klara

     

Skrifa ummæli

<< Home